Til baka

Sönglög Sigfúsar Halldórssonar

Sönglög Sigfúsar Halldórssonar

VERÐANDI

 

Tónleikarnir eru til heiðurs Sigfúsi Halldórssyni tónskálds. Sigfús byrjaði ungur að spila og semja og eru mörg af dægurlagaperlum Íslands eftir Sigfús. Tómas Guðmundson ljóðskáld skrifaði marga texta fyrir lög Sigfúsar og má til dæmis nefna lögin Dagný, Tondeleyó og Þín hvíta mynd. Sigfús var einnig virkur í starfi með Leikfélagi Reykjavíkur og verða vel valin lög flutt frá því tímabili. Þá verða frægustu lögin hans Sigfúsar spiluð, Litla flugan, Lítill fugl, Vegir liggja til allra átta og Íslenskt ástarljóð. Tónleikar sem ættu að vekja upp gamlar og góðar minningar.

Söngkona er Guðný Ósk Karlsdóttir 

Hljóðfæraleikarar:  

Píanó - Þorvaldur Örn Davíðsson

Fiðla - Aldís Bergsveinsdóttir 
Bassi - Tómas Leó Halldórsson

 

Tónleikarnir Sönglög Sigfúsar Halldórssonar er hluti af Listviðburðaröð VERÐANDI í tilefni af 10+1 árs afmæli Menningarhússins Hofs.

 

 

Hvenær
fimmtudagur, ágúst 12
Klukkan
20:00
Verð
3500