Til baka

Teiknimyndalögin okkar

Teiknimyndalögin okkar

Hver elskar ekki Hakuna Matata (Konungur Ljónanna), Bibbidi-babbidi-bú! (Öskubuska), Við tölum ekki um Brúnó (Encanto), Ná mér upp á ný (Tröll) og svo mörg önnur lög úr nýjum sem gömlum teiknimyndum. Fjölskyldusýning þar sem öll uppáhalds teiknimyndalögin okkar óma í Hofi.

Öllu verður tjaldað til, leikmynd, búningar, sögumaður, kór, hljómsveit og einsöngvarar.

Miðasala hefst þegar nær dregur. 

Hvenær
sunnudagur, maí 9
Klukkan
16:00-18:00