Steps Dancecenter býður þér á glæsilega og kraftmikla danssýningu þar sem gleði, sköpun og hæfileikar fá að njóta sín til fulls.
Í The Greatest Show stíga dansarar frá 2ja ára aldri á svið og flytja fjölbreytt og spennandi atriði í dansstílum sem spanna jazz, contemporary og lyrical. Sýningin er innblásin af lokaatriði úr The Greatest Showman og fangar anda skemmtunar, samstöðu og sjálfstjáningar.
Tónlist, dans og sviðsframkoma renna saman í litríka og eftirminnilega upplifun fyrir alla fjölskylduna. Áhorfendur mega búast við glæsilegum búningum, mikilli orku og smitandi dansgleði. Komdu og upplifðu töfra dansins með Steps Dancecenter – sannkallað Greatest Show!