Til baka

Tríó Akureyrar

Tríó Akureyrar

10+1 árs afmæli Hofs
Í tilefni 10+1 árs afmælis Menningarhússins Hofs verður lifandi tónlist á BARR kaffihúsi alla afmælishelgina 27.-29. ágúst.
 
Laugardaginn 28. ágúst klukkan 17 er komið að Tríó Akureyrar. Tríóið er skipað tónlistarmönnunum Valmari Väljaots píanó- og fiðlusjentílmanni, Jóni Þorsteini Reynissyni nikkara og Erlu Dóru Vogler allsherjarsöngkonu. Þríeykið mun leika íslensk og erlend dægurlög, sem og flesta aðra tónlist sem hönd á festir.
 
Það er tilvalið að koma í Menningarhúsið Hof þessa afmælishelgi og njóta veitinga á BARR undir ljúfum tónum listafólksins því þetta verður sannkallað konfekt fyrir öll skynfærin.
 
Dagskráin í tilefni 10+1 árs afmæli Hofs er samstarfsverkefni Menningarfélags Akureyrar og Akureyrarbæjar.

 

 

Hvenær
laugardagur, ágúst 28
Klukkan
17:00-18:00