Til baka

Valdimar Guðmundsson - Jólatónleikar

Valdimar Guðmundsson - Jólatónleikar

Stórsöngvarinn Valdimar Guðmundsson heldur sína fyrstu stórtónleika í Hofi laugardagskvöldið 3. desember ásamt fjölmennri hljómsveit.

Stórsöngvarinn Valdimar Guðmundsson heldur sína fyrstu stórtónleika í Hofi laugardagskvöldið 3. desember ásamt fjölmennri hljómsveit.

Valdimar þarf vart að kynna en hann hefur verið einn þekktasti og dáðasti söngvari landsins undanfarinn áratug. Hljómsveit hans, Valdimar, hefur víða gert garðinn frægan og þar að auki státar hann af glæsilegum sólóferli. Hljómsveitarstjóri er hinn geðþekki Ómar Guðjónsson. Búast má við hugljúfum en einnig kraftmiklum jólatónleikum, sem enginn ætti að missa af.



Hvenær
laugardagur, desember 3
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri