Til baka

Málmblásarakvintett í Akureyrarkirkju

Málmblásarakvintett í Akureyrarkirkju

Tónleikar í Akureyrarkirkju með fjölbreytti efnisskrá

North Atlantic Brass - Tónleikar í Akureyrarkirkju

 Þann 27. nóvember heldur North Atlantic Brass, alþjóðlega verðlaunaður málmblásarakvintett, tónleika í Akureyrarkirkju. Kvintettinn er skipaður fimm ungum og metnaðarfullum tónlistarmönnum frá Íslandi, Danmörku og Noregi sem hafa vakið athygli fyrir kraftmikinn flutning, samspil og fjölbreytta efnisskrá. Meðlimir hópsins leika reglulega með nokkrum af fremstu sinfóníuhljómsveitum Norðurlandanna. Á tónleikunum verður boðið upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þar sem íslensk og norræn þjóðlög, djass, klassísk tónlist og jólalög fá að hljóma.

North Atlantic Brass er brasskvintett með aðsetur í Kaupmannahöfn og var stofnaður árið 2019. Hópurinn hefur komið fram víða á Norðurlöndunum og erlendis og vann meðal annars fyrstu verðlaun í Ryan Anthony Memorial keppninni í Los Angeles árið 2024.

Kvartettinn skipa íslendingarnir Gunnar Kristinn Óskarsson (trompet), Erling Róbert Eydal (horn), and Gunnar Helgason (básúna), ásamt danska trompetleikaranum Frederik Pehrsson and hinum norska August Schieldrop sem spilar á túbu.

Meðlimir kvintettsins starfa með nokkrum af fremstu sinfóníuhljómsveitum Norðurlandanna. Erling er meðal annars fastráðinn hornleikari í Sinfóníuhljómsveit danska ríkisútvarpsins, en Gunnar Kristinn er nú á reynslutíma sem leiðari trompetdeildar Sinfóníuhljómsveitarinnar í Árósum. August Schieldrop hefur einnig vakið athygli á alþjóðavettvangi sem túbueinleikari.

Hvenær
föstudagur, nóvember 27
Klukkan
20:00-21:30
Hvar
Akureyrarkirkja
Verð
Fullt verð: 3000 kr. Verð fyrir nema, öryrkja og aldraða: 1500 kr.