20. júní, laugardagur
Mæting við kirkjuna á Hofsósi kl. 12:30. Báturinn fer kl. 13.
Fararstjórn: Herdís Zophoníasdóttir
Siglt er frá Hofsósi út í Málmey með Drangey Tours. Fararstjóri hittir hópinn við kirkjuna á Hofsósi og leiðir hópinn að bátnum. Fjölbreytt fuglalíf er í eynni, merkileg saga og náttúra. Gengið um eyjuna í um tvo tíma í fylgd staðkunnugs leiðsögumanns. Farið verður í útsýnissiglingu að Þórðarhöfða þar sem er stórkostlegt stuðlaberg og Drangey er einnig í sjónmáli. Sjóferðin tekur 4–5 klst.
ATH. Það tekur 1,5 klst. að aka frá Akureyri til Hofsóss.
Hámarksfjöldi í bátinn er 17 manns.
Verð: 28.000 / 32.000 kr. Innifalið: Sigling, fararstjórn og leiðsögn á leiðinni og í eynni.