Til baka

Málþing: Um heilagan fugl

Málþing: Um heilagan fugl

Myndlist, fuglafræði og mannfræði mætast.

Í tilefni af síðustu sýningarhelgi Sýningar um heilagan fugl eftir Örlyg Kristfinnsson verður haldið málþing um geirfuglinn, útrýmingu hans og samband mannsins við náttúruna.

Myndlist, fuglafræði og mannfræði mætast þegar Örlygur Kristfinnsson, Tim Birkhead og Gísli Pálsson ræða sögu geirfuglsins og þær spurningar sem hún vekur um ábyrgð mannsins, nýtingu náttúrunnar og útrýmingu tegunda.

Dagskrá

14:00 Setning málþings
14:10 Örlygur Kristfinnsson – Geirfuglasýningin - hvað býr að baki?
14:30 Tim Birkhead – The Great Auk: A Bird, a Life and a Human Obsession
14:50 Gísli Pálsson – The Last of Its Kind – geirfuglinn og saga útrýmingar
15:00 Kaffi og konfekt
15:15 Samtal þátttakenda – Hvað getum við lært af heilögum fugli?
15:45 Spurningar úr sal
16:00 Málþingi lýkur

Fundarstjóri: Embla Eir Oddsdóttir

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis.

Málþingið fer fram á ensku.

Hvenær
laugardagur, september 5
Klukkan
14:00-16:00
Hvar
Kaupvangsstræti 8, Akureyri, Iceland