Til baka

Margrét Jónsdóttir - Kimarek-Keramik

Margrét Jónsdóttir - Kimarek-Keramik

Sýning Margrétar Jónsdóttur

Í tilefni af 40 ára starfsferli Margrétar Jónsdóttur óskaði Listasafnið á Akureyri eftir samstarfi við almenning um lán á einstaka munum fyrir yfirlitssýningu hennar, Kimarek – Keramik. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og safnaðist fjöldi muna. Á sýningunni eru munirnir settir saman í eina innsetningu og er ætlað að spanna tímabilið frá upphafi ferils Margrétar til dagsins í dag.

Margrét Jónsdóttir er fædd á Akureyri 1961. Hún fór ung til Danmerkur og nam leirlist í listiðnaðarskólanum í Kolding, en snéri heim að námi loknu 1985 og stofnaði sitt eigið leirverkstæði í bílskúrnum hjá ömmu sinni. Í rúm 20 ár hefur hún haft vinnustofu í Gránufélagsgötu 48 á Akureyri, þar sem hún vinnur að list sinni og selur eigin verk.

Viðfangsefni Margrétar hafa verið margvísleg í gegnum tíðina og hún unnið jöfnum höndum að gerð nytjalistar, stærri listmuna og listskreytinga. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis.

Sýningarstjóri: Sigríður Örvarsdóttir.

Hvenær
5. júní - 28. september
Klukkan
10:00-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Aðgangseyrir inn á safnið