Til baka

Margskonar myndlist

Margskonar myndlist

Fyrirlestur Heiðu Bjarkar Vilhjálmsdóttur, fræðslustjóra Listasafnsins á Ak.

Í fyrirlestrinum mun Heiða Björk fræða gesti um ólíka miðla myndlistar út frá völdum verkum úr safneign Listasafnsins. Í myndlist merkir orðið miðill þá aðferð sem listamaður hefur valið til að vinna í en listamenn nota margskonar aðferðir til að miðla og tjá hugmyndir sínar. Tekin verða dæmi af fjölbreyttum verkum eftir ólíka listamenn.

Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa.

Öll hjartanlega velkomin!

Hvenær
föstudagur, október 31
Klukkan
13:30-15:00
Hvar
Salurinn á hjúkrunarheimilinu Hlíð, Austurbyggð 17, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir