MEGI HRINGURINN VERA ÓBROTINN - Listasýning eftir Gillian Alise Pokalo
Sýning á nýjum málverkum innblásnum af íslensku landslagi og norðurljósum
Titill þessarar sýningar kemur úr samnefndum sálmi kvekara, en textinn fjallar um hringrás lífsins.
Listaverkin á þessari sýningu byrjuðu að vera til í nóvember 2025 sem svar við andláti kærrar vinkonu Gillians og leiðbeinanda, sem þær sáu norðurljósin saman í fyrsta sinn. Þessi málverk eru til minningar um Frumi Cohen: leikskáld, tónlistarkonu, listakonu, kennara og vinkona. Verkin eru fléttuð saman við minningar sem þær deila í landslagi Íslands.
Verk Gillian hafa verið innblásin af landslagi Íslands og tilfinningaríkum himninum allt frá fyrstu heimsókn hennar árið 2014. Það sem gerðist svo var þróun í átt að því lifi sem hún lifir nú hér á Akureyri, sem bæði listkennari og myndlistarkona. Fyrsta heimsókn hennar leiddi af sér fjölda annarra ferðalaga, listamannadvala, námskeiða, veggjamálunar, og loks að því að búa heimili sitt á Akureyri með eiginmanni sinum og sonum.
Áður en hún flutti til Íslands átti Gillian virkan listferil í og við Philadelphiu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum, þar sem verk hennar voru reglulega á sýningum í galleríum. Hún var meðlimur í mörgum listasamtökum og í dag er hún m.a. meðlimur í Professional Artist Network fyrir Speedball Incorporated, sem er framleiðandi silkiprentvara í Bandaríkjunum. Frá því að hún útskrifaðist frá Moore College of Art Design árið 2005 hafa verk hennar verið á mörgum opinberum stöðum og í einkasöfnum bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi, þar á meðal 20th Century Fox, Duus Safn í Keflavík, Phoenixville, Pennsylvianíu og fleiri.