Opin viðburður fyrir öll sem vilja ræða samstarf menningar og ferðaþjónustu
Aukum samtalið og styrkjum samstarfið!
Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS), Síldarminjasafnið á Siglufirði og Samtök Ferðaþjónustunnar (SAF) standa fyrir viðburðinum, Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi – opin vinnustofa á Akureyri, sem haldinn verður fimmtudaginn 7. maí kl. 10.00 - 15.00 í Lionssalnum, Skipagötu 14.
Viðburðurinn er opin fyrir alla hagaðila menningar og ferðaþjónustu!
Markmiðið er að viðburðurinn verði bæði skemmtilegur og gagnlegur en lagt er upp með að styðja og styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónustuaðila á Norðurlandi og stuðla að sjálfbærri þróun í ferðaþjónustu. Því viljum við leiða saman alla aðila á einn stað og hefja samtalið. Því aukin samvinna er ekki síst mikilvæg í ljósi þess að heimsóknir á söfn eru þriðja vinsælasta afþreying ferðamanna á Íslandi, á eftir náttúrulaugum og heilsulindum.
DAGSKRÁ
9:30 Húsið opnar.
10:00 Opnun.
Einn af skipuleggjendum: Guðrún Dröfn Whitehead kynnir niðurstöður könnunar
10:15-11.15. Pallborðsumræður 1: Möguleikar í samstarfi innan svæða.
Þátttakendur halda 5 mín kynningu hver, í kjölfarið eru umræður og spurningar teknar úr sal.
Pallborðsstjóri: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka Ferðaþjónustunnar.
Þátttakendur:
Haraldur Þór, forstöðumaður Minjasafnsins á Akureyri.
Helga Nína Helgadóttir, Markaðsstjóri SBA Norðurleiðir.
Elías Bj. Gíslason, sérfræðingur á sviði þróunar og þjónustu hjá Ferðamálastofu.
11:15-12.15. Pallborðsumræður 2: Áskoranir og úrræði.
Þátttakendur halda 5 mín kynningu hver, í kjölfarið eru umræður og spurningar teknar úr sal.
Pallborðsstjóri: Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands.
Þátttakendur:
Aníta Elefsen, safnstjóri Síldarminjasafns Íslands.
Elín Aradóttir, markaðs- og áfangastaðaþróun hjá Markaðsstofa Norðurlands.
Kristín Sóley Björnsdóttir, viðburðastjóri hjá Menningarfélagi Akureyrar
Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður atvinnu-, menningar og markaðsmála hjá Akureyrarbæ
12:15-13.00 Hádegishlé
13:00-14.00. Menningarstofnanir og markaðssetning. Hagnýtur fyrirlestur – vinnustofa. Datera.
14:00-15.00. Hvernig eflum við samtalið, “speed-dating” viðburður. Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, Háskóli Íslands.