Til baka

Menningarrými og innflytjendur: Rannsóknir og list

Menningarrými og innflytjendur: Rannsóknir og list

Menningarrými og innflytjendur: Rannsóknir og list

Íslenskt menningarlíf hefur á undanförnum árum smám saman orðið fjölbreyttara. Á þessum viðburði og vinnustofu er sjónum beint að tækifærum og nýjum leiðum fyrir menningarrými í tengslum við aukinn fjölbreytileika og fólksflutninga til Íslands, sérstaklega á landsbyggðinni.

Viðburðurinn samanstendur af kynningum á tveimur skýrslum sem koma út á árinu auk upplesturs rithöfunda af erlendum uppruna.

Viðburðurinn fer fram á íslensku og ensku og verður aðgengilegur á báðum tungumálum.


Amtsbókasafnið á Akureyri
Brekkugata 17,
600 Akureyri.


Kl. 11:15–13:15


Dagskrá
11:15: Kaffi og móttaka
11:30
1. Kamila Ciołko-Borkowska, pólskt skáld og rithöfundur búsett á Svalbarðseyri, les úr verki sínu og segir frá ljósmynda- og ljóðasýning „Játning erlendrar konu“ (Amtsbókasafnið á Akureyri, janúar 2026)
2. Kynning skýrslu „Multilingual Writing in Iceland: Opportunities, Challenges, and Institutional Support“ eftir Ewu Marcinek, Önna Valdísi Kro, Christopher Marcatili og Löru W. Hoffmann (unnin sem hluti af Erasmus+ verkefninu “Multilingual Writing Lab”).
3. Kynning handbókarinnar „Vettvangur samsköpunar: Menningarstofnanir sem hlúa að samtali um fjölbreytileika“ eftir Önnu Mariu Wojtynska, Löru Hoffmann og Dögg Sigmarsdóttur (unnin sem hluti af rannsóknarverkefninu „Vettvangur Samsköpunar“).
4. Tess Rivarola og Jelena Prlíc, sem búa á Austurlandi, munu deila myndskeiðum, hugleiðingum og tilfinningum tengdum tveimur verkefnum: „Sæhjarta. Stories of Transformation“ (2025) og „What Does Home Mean to Us?“ (2026). Þetta er hluti af ferli sem miðar að því að skapa rými fyrir skapandi nánd meðal kvenna af erlendum uppruna, með áherslu á sögur sem tengja okkur saman vegna þess að þær fjalla um eitthvað mjög mannlegt: fólksflutninga og þörfina fyrir að tilheyra.
12:15: Vinnustofur og hádegisverður
13:00: Lokaumræða
13:15: Viðburði lýkur


Öll eru velkomin og viðburðurinn hentar sérstaklega þeim sem hafa áhuga á list, ritlist, menningu og fólksflutningum.
Geturðu ekki tekið þátt á staðnum? Þú getur samt tekið þátt á netinu! Viðburðinum verður streymt á netinu og klukkan 12:00 mun Ewa Marcinek halda netfund fyrir þátttakendur víðs vegar af landinu.


Viðburðinn er styrktur af menningarsjóði Akureyrarbæjar.

Hvenær
laugardagur, október 17
Klukkan
11:15-13:15
Hvar
Brekkugata 17, Akureyri, Iceland
Verð
ókeypis