Til baka

Mennska bókasafnið

Mennska bókasafnið

Opið samtal við allskonar einstaklinga.

Það er ómetanlegt að geta miðlað mismunandi reynsluheimum í formi samtals.

Þann 26. ágúst næstkomandi, á Akureyrarvöku, ætlum við halda viðburð á Amtsbókasafninu þar sem lánaðar verða út Mennskar bækur. Á hinu Mennska bókasafni gefst tækifæri til þess að spjalla í um hálftíma við einstaklinga sem standa frammi fyrir ólíkum og mögulega mjög framandi áskorunum og heyra þeirra hlið í þeirra eigin orðum.

Fyrsta mennska bókasafnið opnaði í Danmörku árið 2000 og síðan þá hafa viðburðir á vegum þeirra farið fram í 85 löndum. Dæmi um bókatitla sem hafa verið á viðburðum úti í heimi eru til dæmis: ADHD, Óvirkur alkóhólisti, Tvíkynhneigð, Kulnun, Innflytjandi.

Viltu komast að því hvaða mennsku bækur verða í boði?
Kíktu á Amtsbókasafnið á bilinu 13:00-16:00 laugardaginn 26. ágúst!
Þar verðum við með bókalista í anddyrinu og þið getið tekið frá þá titla sem þið eruð spenntust fyrir ef þeir eru þegar í útláni þegar þið komið.

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 26. ágúst
Tímasetning: 13.00 - 16.00
Staðsetning: Amtsbókasafnið á Akureyri
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir


Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku 2023.

Hvenær
laugardagur, ágúst 26
Klukkan
13:00-16:00
Hvar
Amtsbókasafnið, Brekkugata, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir