Til baka

Milljarður Rís 2020

Milljarður Rís 2020

Árleg dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi.

Hin árlega dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi – Milljarður rís fer fram í Hamragili í Hofi þann 14. febrúar. Milljarður rís er viðburður sem haldinn er víða um heim þar sem rúmur milljarður fólks dansar fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Tónlistarstjóri viðburðarins verður kynntur til sögunnar þegar nær dregur.

Ein af hverjum þremur konum í heiminum er beitt kynbundnu ofbeldi - þar er Ísland engin untantekning. Annan hvern dag leitar kona á landsspítalann vegna heimilisofbeldis samkvæmt rannsókn sem gerð var í fyrra. Með því að mæta og dansa með heimsbyggðinni gefur þú ofbeldi fingurinn í eitt skipti fyrir öll.

Munið myllumerkið #milljarðurrís

Hvenær
föstudagur, febrúar 14
Klukkan
12:15-13:00
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri
Nánari upplýsingar