Nýverið fór hópur af kennurum frá Tónlistarskólanum á Akureyri til Brasilíu saman til að taka þátt í "Camp da Música Brasileira", sem hefur verið haldið síðastliðin 5 ár nálægt São Paulo. Íslendingunum var vægast sagt tekið opnum örmum og það mætti segja að upplifunin hafi verið sem ævintýri líkast. Ásamt því að heyra mikið af flottri tónlist, og smakka mikið af góðum mat, lærði hópurinn margt um brasilísk tónlist og menningu.
Á þessum tónleikum verður flutt brasilísk tónlist af allskyns toga, Samba, Bossa nova, Tropicália, MPB (música popular brasileira), og fleira. Einnig mun Ívan rifja upp minningar og skemmtilegar sögur frá þessu ferðalagi.
Ívan Mendez - Gítar og söngur
Sigfús Jónsson - Rafbassi
Michael Weaver - Saxófónn/Flauta/Klarinett
Rodrigo Lopez - Trommur
Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarbæ.