Til baka

Mitt atkvæði - Mín rödd Vinnustofur

Mitt atkvæði - Mín rödd Vinnustofur

Ertu einstaklingur af erlendum uppruna?

Ertu einstaklingur af erlendum uppruna búsettur á Akureyri, í Eyjarfjarðarsveit, Grýtubakkahreppi (Grenivík), Hörgársveit eða Svalbarðsstrandarhreppi?

Sveitarstjórnarkosningar verða 16. maí. Þau sem hafa haft lögheimili á Íslandi í þrjú ár samfleytt hafa rétt til að kjósa.

Gjaldfrjálsar vinnustofur um kosningarétt og önnur skyld mál verða haldnar 28. febrúar kl. 10-17 og 1. mars kl. 13-16 fyrir íbúa af erlendum uppruna. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Vinnustofurnar fara fram í Ráðhúsinu á Akureyri, Geislagötu 9. Þar gefst tækifæri til að hitta og ræða málin við aðra íbúa og læra um lýðræðisleg réttindi, hlutverk sveitarstjórna, hvernig hægt er að hafa áhrif á sveitarstjórnarmál, hvenær og hvernig kosningar fara fram.

Fræðsluvinnustofa fer fram 28. febrúar og næsta dag verður önnur vinnustofa þar sem tækifæri gefst til að taka þátt í hvatningaherferð undir slagorðinu: Mitt Atkvæði - Mín Rödd. „Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast íslenska stjórnkerfinu og hvernig hægt er að hafa áhrif,“ segir Ólöf Rún Pétursdóttir ráðgjafi í samrændri móttöku flóttafólks. Ólöf hvetur öll áhugasöm til að ská sig og bendir þeim á sem hafa spurningar að hafa samband með því að senda tölvupóst á netfangið olof.run.petursdottir@akureyri.is. Nánari upplýsingar á fleiri tungumálum hér.

Skráning hér.

Verkefnið er stutt af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og innleitt í samstarfi við sveitarfélögin.

Hvenær
28. febrúar - 1. mars
Klukkan
10:00-16:00
Hvar
Geislagata 9