Móðir, kona, meyja
Brot úr verkinu Móðir, kona, meyja sýnt á Amtsbókasafninu
Í tilefni kvennaárs verður sýnt brot úr verkinu Móðir, kona, meyja, eftir Umskiptinginn Sesselíu Ólafs, en verkið fjallar um þrjár konur sem þekkjast ekki en hittast í bústað til þess að lesa. Þær eru á ólíkum aldri, ein nýlega útskrifuð úr menntaskóla, ein að nálgast fertugt og ein um sextugt. Sú yngsta elskar að dansa, sú fertuga vill helst bara lesa í friði og sú elsta er spennt að kynna hinum ljóð og sögur íslenskra skáldkvenna. Engin þeirra er alls kostar sátt við sínar aðstæður en þær komast smám saman að því að þær geta lært ýmislegt hver af annarri.
Viðburðurinn er samstarf Umskiptinga og Amtsbókasafnsins á Akureyri og hann er styrktur af:
-Sóknaráætlun Norðurlands eystra
-Menningarsjóði Akureyrar
-Menningarsjóði KEA
-Verkefnisins læsi á stöðu og baráttu kvenna
Læsi á stöðu og baráttu kvenna er samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi í tilefni af Kvennaári 2025.
Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði.
Frítt er inn á viðburðinn.