Til baka

Moses Hightower ásamt gestum - Búum til börn

Moses Hightower ásamt gestum - Búum til börn

Moses Hightower ásamt glæsilegum hópi gestaleikara flytur okkur plötuna Búum til börn ásamt velvöldum öðrum lögum Mosesar, og nokkrum glænýjum.

Þegar fyrsta plata hljómsveitarinnar Moses Hightower, Búum til börn, kom út
í júlí 2010 voru gagnrýnendur og hlustendur sammála um að hér kvæði
við nýjan tón í íslenskri tónlist. Útsetningar, hljóðheimur og
spilamennska sóttu óspart í sálartónlist 7. og 8. áratugar, en textar
þóttu minna á íslenskt lopapeysupopp frá sama tímabili, ekki síst
Spilverk þjóðanna. Í öllu falli var plötunni tekið fagnandi, og lögin
„Vandratað“ og „Bílalest út úr bænum“ hljómuðu látlaust úr viðtækjum
landsins. Í kjölfarið birtist platan á hinum og þessum listum yfir
bestu plötur ársins, og sveitin fékk tilnefningar til Íslensku
tónlistarverðlaunanna fyrir plötu ársins og textahöfunda ársins.

Í tilefni þess að 10 ár eru liðin frá útgáfu plötunnar (gisp!) ætlar
hljómsveitin að halda tónleika hringinn í kringum landið, skrýdd sömu
silkimjúku gestaflytjendunum og heiðruðu hana á plötunni: Óskar
Guðjónsson leikur á sax, Samúel Jón Samúelsson á básúnu og Kjartan
Hákonarson á trompet og flugelhorn, og bakraddir syngja Bryndís
Jakobsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Sigríður Thorlacius.
Sannkallaðir
sparitónleikar þar sem platan verður leikin í heild sinni, ásamt
feikivel völdum öðrum lögum Mosesar, og nokkrum glænýjum.

Hvenær
laugardagur, júní 12
Klukkan
21:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4990