Til baka

Mugison

Mugison

Mugison ásamt Rodriguez Svönusyni trommara á sínum uppáhaldsstað.

Við Kristófer Rodriguez Svönuson (trommari) komum aftur norður á sjálfan gabbdaginn mikla - 1. apríl. Þið vitið að ég elska að koma norður á Græna. Ég er langt kominn með nýja plötu þannig að við fáum kannski að prófa 1-2 ný lög en annars lofa ég að við munum sprella og spila af öllum lífsins sálarkröftum, 190% lang langt yfir getu. Hlakka mikið til að sjá ykkur.
ps. finnst einsog einhver hafi kallað laganafn síðast þegar ég spilaði á græna og ég hafi lofað að taka það næst þegar ég kæmi norður (afþví ég kunni það ekki)! dreymdi mig þetta? ef ekki.. man einhver eftir þessu? - hvaða lag lofaði ég að rifja upp?
Stuðkveðja, Mugison

Hvenær
laugardagur, apríl 1
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4500