Til baka

Myndlist í Ráðhúsinu

Myndlist í Ráðhúsinu

Nemendur í Glerárskóla sýna myndverk. Þema sýningarinnar er Náttúra og umhverfi.

Í GLERÁRSKÓLA er hefð fyrir því að halda myndlistakeppni í tengslum við árshátíð skólans. Nemendur allra bekkja fá tækifæri til að spreyta sig við listsköpunina. Í ár var þema keppninnar NÁTTÚRA OG UMHVERFI. Dómnefnd velur þau myndverk sem þykja fanga þema keppninnar hvað best og nú hanga sum verkanna uppi í Ráðhúsi Akureyrarbæjar starfsfólki og gestum til gleði og ánægju. 

Myndlistin fellur vel að einkunnarorðum skólans sem eru HUGUR, HÖND, HEILBRIGÐI. 

Njótið listaverkanna,
Nemendur Glerárskóla.


Verkefnið nýtur stuðnings Akureyrarbæjar og er hluti af Barnamenningarhátíð.

 

Hvenær
8. apríl - 31. maí
Klukkan
09:00-16:00
Hvar
Ráðhús, Glerárgata, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir