Dóra Emils stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands en hélt síðan til framhaldsnáms í Amsterdam þar sem hún lauk prófi frá Gerrit Rietveld Academie. Síðan þá hefur hún unnið að myndlist og haldið fjölda sýninga innan lands og utan.
Verk Dóru einkennast af samspili hins óræða og hins hlutbundna, hins innra og hins ytra. Ljóðræna verður til þar sem hið smágerða í náttúrunni, svo sem blóm og jurtir eða manngerðir hlutir, mætir hinu stóra og birtist sem glimmer eða glitrandi ský. Innri heimur tekur á sig fínlega mynd og birtir óvænta dýpt þar sem lítil atriði leika stóra rullu í frásögninni.
Verkin eru unnin á síðustu árum með blandaðri tækni á pappír.
Myndstef - Myndhöfundasamtök Íslands, styrkir sýninguna.