Til baka

Fuglinn sem gat ekki flogið - Listasmiðja - FRESTAÐ

Fuglinn sem gat ekki flogið - Listasmiðja - FRESTAÐ

Spennandi listasmiðja með Jonnu

 

Viðburðinum hefur verið frestað í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu. Nánar auglýst síðar

 

Laugardaginn 31. október kl. 11-12.30 verður boðið upp spennandi á listasmiðju í Listasafninu á Akureyri í samstarfi við Listasafn ASÍ. Umsjón hefur Jonna – Jónborg Sigurðardóttir, myndlistarmaður. 

Listasafn ASÍ stendur fyrir myndlistarsýningum og barnanámskeiðum í tengslum við útkomu bókar Gísla Pálssonar um örlög geirfuglsins, Fuglinn sem gat ekki flogið. Sýningarnar og námskeiðin eru haldnar í samstarfi við fjölmarga aðila víðsvegar um landið. Verk barnanna sem taka þátt á hverjum stað fyrir sig verða hluti sýninganna sem settar verða upp á eftirtöldum stöðum:

Ásmundarsal við Freyjugötu í Reykjavík
31. október-2. nóvember

Listasafni Reykjanesbæjar í Keflavík
7.-8. nóvember

Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri
10.-17. nóvember

Eldheimum í Vestmannaeyjum
21.-22. nóvember


Takmarka þarf fjölda foreldra og forráðamanna á hverjum viðburði við 20 og virða tveggja metra regluna. Fólk er beðið að virða núgildandi sóttvarnarreglur yfirvalda í hvívetna. Sjá nánar á www.covid.is


 


Viðburðurinn er haldin í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri sem fer fram í október og styrktur af uppbyggingarsjóði SSNE.

Hvenær
laugardagur, október 31
Klukkan
11:00-12:30
Hvar
Listasafnið á Akureyri / Akureyri Art Museum, Kaupvangsstræti, Akureyri
Nánari upplýsingar

Enginn aðgangseyrir