Til baka

Mývatnssveit: Hofsstaðir - Sandvatn - Hofsstaðir

Mývatnssveit: Hofsstaðir - Sandvatn - Hofsstaðir

Mývatnssveit: Hofsstaðir - Hofsstaðaheiði - Sandvatn - Hólkotsgil - Hofsstaðir

1 - 2 skór

12. júlí, sunnudagur

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Lagt af stað frá Hofsstöðum kl. 9:30.

Fararstjórn: Egill Freysteinsson, Vagnbrekku í Mývatnssveit

Gengið frá Hofsstöðum upp í Hofsstaðaheiði með útsýni yfir Mývatn og Sandvatn og að vesturenda vatnsins, síðan niður með Hólkotsgili að Laxá.

Eftir nestisstopp við Laxá er gengið upp með ánni uppi í miðjum hlíðum og fæst þá gott útsýni yfir Laxá og niður eftir efsta hluta Laxárdals.

Fræðst verður um fyrri tíðar virkjunaráform og áhrif sem þeim hefði fylgt á svæðið. Komið við hjá „Áslaugu“ sem er volgra og geta einhverjir ef til vill

fengið sér þar fótabað. Ferðin endar svo á Hofsstöðum og þar verður fræðst um sögu bæjarins og minjar sem þar hafa fundist.

Gangan frá Hofsstöðum að Sandvatni er eftir bílslóð en síðan er mólendi og í hlíðinni upp með Laxá er lyngmói og e.t.v. leifar af kindagötum.

Göngunni lýkur á Hofsstöðum milli klukkan 14 og 15.

Vegalengd: 10–12 km. Gönguhækkun: 150 m.

Hvenær
sunnudagur, júlí 12
Klukkan
08:00-16:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
2.700 / 4.400 kr. Innifalið: Fararstjórn.