Til baka

Mývatnssveit: Skútustaðir – Litlaströnd – Grænavatn – Skútustaðir

Mývatnssveit: Skútustaðir – Litlaströnd – Grænavatn – Skútustaðir

Gengið með Kráká að bænum Litluströnd áður en haldið verður yfir Framengjar.

27. júní, laugardagur

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Lagt af stað frá bílastæðinu við Hótel Sel á Skútustöðum kl. 09:30

Fararstjórn: Þóroddur Þóroddsson

Gengið með Kráká að bænum Litluströnd áður en haldið verður yfir Framengjar sem öldum saman voru undirstaða heyfengs á fjölda bæja í sveitinni. Síðan er gengið eftir gömlum götum og bílslóðum allt þar til komið er að Grænavatni þar sem verður stoppað um stund og fræðst um sögu staðarins og gömlu húsanna þar. Eftir gott nestisstopp á Grænavatni er gengið út að Garði og gamla þjóðveginn meðfram vatninu að Skútustöðum. Stoppað við Arnarbæli og endað á Skútustöðum um klukkan 17:00. Gott að taka með sér nesti.

Öll þessi ganga er á gömlum vegum og fjárgötum. Á allri leiðinni verður fræðst um ýmislegt s.s. þjóðsögur, heyskaparhætti, endurheimt votlendis, áveitur, gervigíga og margt fleira.

Heildarvegalengd: um 15 km. Gönguhækkun: Engar brekkur eða torfærur sem orð er á gerandi.

Hvenær
laugardagur, júní 27
Klukkan
08:00-17:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
3.700 / 5.400 kr.