Til baka

Nánd

Nánd

Myndlistarsýning í Mjólkurbúðinni
Björg Eiríksdóttir vinnur með fjölbreytta miðla þar sem náttúran og samband manns og umhverfis eru í forgrunni. Í sýningunni beinir hún athygli sinni að líkamanum og skynrænni reynslu þess að vera í náttúru – og að vera náttúra.
 
Björg stundaði meistaranám við myndlistardeild Portóháskóla veturinn 2020-21. Hún lauk MA í listkennslu frá HA vorið 2017, útskrifaðist frá Myndlistarskólanum á Akureyri 2003 og lauk B.ed. frá KHÍ 1991. Hún starfar við myndlist samhliða kennslu myndlistargreina við VMA. Þetta er 16 einkasýning hennar og hefur hún tekið þátt í fjölmörgum samsýningum.
 
Sýningin varð til í vinnustofudvöl í Vanta í Finnlandi í júní.
 
 
Hvenær
25. júlí - 3. ágúst
Klukkan
14:00-17:00
Hvar
Mjólkurbúðin Kaupvangsstræti