Til baka

Nanna

Nanna

Nanna (Of Monsters of Men) loksins aftur á Græna hattinum

Tónlistarkonan Nanna, sem hefur skapað sér nafn með hljómsveitinni Of Monsters and Men, fetaði ótroðnar slóðir í vor þegar hún gaf út sína fyrstu sólóplötu. Plata hennar, How to Start a Garden, kom út í maí við frábærar undirtektir og fagnaði Nanna útgáfu hennar þegar hún spilaði fyrir fullu húsi í Bæjarbíó í sumar. How to Start a Garden var síðan fylgt eftir með tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum þar sem hún kom fram ásamt einvalaliði tónlistarfólks. Þann 10. nóvember mun hún heimsækjum Græna hattinn og spila lög af plötunni og hver veit nema áhorfendur fái einnig að heyra nýtt efni. Eins og fyrr segir kemur Nanna fram ásamt hljómsveit en hana skipa:

 

Bjarni Þór Jensson: Gítar/söngur

Magnús Tryggvason Eliassen: Trommur/slagverk

Rakel Sigurðardóttir: söngur/fiðla

Tómas Jónsson: Hljómborð

 

How to Start a Garden er tilkomumiki upphaf á nýju sólóverkefni Nönnu og mega tónleikagestir eiga von á einstakri upplifun með þessari heillandi tónlistarkonu.

 

Rakel Sigurðardóttir hitar upp.

 

 

Hvenær
föstudagur, nóvember 10
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
6900