Náttúra og auðlindanýting á Norðurlandi
Málþing AkureyrarAkademíunnar og Auðlindadeildar Háskólans á Akureyri
Fundarstjóri er Brynjar Karlsson, forseti Heilbrigðis-; viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Áhugasöm sem ekki komast á staðinn geta fylgst með á Zoom.
Dagskrá
Kl. 12:00 – Ávarp – Sigurgeir Guðjónsson, stjórnarformaður AkureyrarAkademíunnar.
Kl. 12:05 – Fimm 15 mínútna framsögur um þema málþingsins:
- Hreiðar Þór Valtýsson, dósent við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri: Fiskveiðar frá Norðurlandi í 125 ár.
- Jón Örn Pálsson, sjávarútvegsfræðingur, sjálfstætt starfandi hjá AkureyrarAkademíunni: Ný auðlindanýting á strandsvæðum Íslands.
- Rannveig Björnsdóttir, prófessor við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri: Verðmætasköpun úr blóði eldisfisks.
- Þórhallur S. Bjarnason, véla- og orkutæknifræðingur, sjálfstætt starfandi hjá AkureyrarAkademíunni: Vistvænn orkuberi úr hreinum auðlindum.
- Rán Þórarinsdóttir, líffræðingur á sviði dýravistfræði hjá Náttúrustofu Norðausturlands og með aðsetur hjá AkureyrarAkademíunni: Að meta áhrif vindorkuvera á fugla.
Kl. 13:20 – Pallborðsumræður: Framsögumenn sitja fyrir svörum.
Kl. 14:00 – Málþingslok.
Öll velkomin!