Til baka

Nítján þúsund klukkustundir

Nítján þúsund klukkustundir

Fanný María Brynjarsdóttir sýnir í Deiglunni.

Fanný María Brynjarsdóttir lauk námi frá fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 2020 og hefur síðan þá þróað sinn stíl og haldið í þær áttir sem hugurinn leiðir hana. Á sýningunni má finna úrval þeirra verka sem sköpunargáfan hefur kallað fram síðustu 19.000 klukkustundirnar.

Fanný María Brynjarsdóttir fæddist á Akureyri árið 1967. Fyrstu árin bjó hún í Hrísey, perlu Eyjafjarðar, en fluttist níu ára gömul til Akureyrar og hefur búið þar nær óslitið síðan. Hún er með vinnustofu í miðbæ Akureyrar og fæst aðallega við olíumálun og akrýlmálun, en einnig einþrykk og vatnslitamálun, og nýtur þess að skapa hvað sem henni dettur í hug hverju sinni.

Sýningin er í Deiglunni í Listagilinu og er opin frá 14:00 – 17:00 laugardaginn 6. ágúst og sunnudaginn 7. ágúst.

Hvenær
6. - 7. ágúst
Klukkan
14:00-17:00
Hvar
Deiglan Gilfélagið, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir