Listasafnið á Akureyri auglýsti fyrr á árinu eftir umsóknum um þátttöku í samsýningu norðlenskra listamanna og sérstök dómnefnd valdi inn verk. Alls voru valin verk eftir sautján listamenn. Sýningunni er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar.
Þátttakendur eru Arthur Ragnarsson, Brynja Baldursdóttir, Egill Logi Jónasson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Helga Ósk Einarsdóttir, Hlynur Hallsson, Inga Lísa Middleton, Íris Eggertsdóttir, Karl Guðmundsson | Rósa Júlíusdóttir, Katrin Hahner, Kristján Helgason, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Sigurður Mar Halldórsson, Sunna Svavarsdóttir, Tereza Kocianova.
Dómnefndina skipuðu Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, Erling Jóhannesson, gullsmiður og leikari, Heiðar Kári Rannversson, listfræðingur og sjálfstæður sýningarstjóri, Kristín Scheving, safnstjóri Listasafns Árnesinga, og Katrín Gunnarsdóttir, sýningarstjóri.