Beta Gagga gestalistamaður Gilfélagsins í júní opnar grafíksýningu í Deiglunni föstudaginn 27. júní kl. 17
Á sýningunni sem ber yfirskriftina Nostalgía verða um 30 grafíks verk sem unnin hafa verið frá 2020 til 2025.
Sýningin er í beinu framhaldi af sýningu Betu í Listasal Mosfellsbæjar í mars 2025 þar sem hluti af verkunum voru sýnd.
Nostalgía
Ég vinn með hringformið – tákn eilífðar og endurtekningar.
Litir, áferð og tónlist fléttast saman í verkum mínum,
þar sem fortíð og nútíð mætast í sjónrænum kokteil.
Gamaldags veggfóðursmynstur og lífræn form
kalla fram minningar og tengingar við æskuárin.
Á þessu ári hefur tónlist og texti orðið hluti af málverkinu,
sem leið til að nálgast kjarna tilfinninga og tengsla.
Verkin eru brot úr tímum sem mótuðu mig –
ljúf fortíðarþrá um ástvini, augnablik
og sjálfsmynd í sífelldri mótun.