Til baka

Óhöpp & annað vesen

Óhöpp & annað vesen

Spennandi myndlistarsýning í Mjólkurbúðinni.
Föstudaginn 5. ágúst kl. 20 verður opnuð sýning á verkum Heiðdísar Hólm í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri. Sýningin heitir „Óhöpp og annað vesen" og mun standa til 14. ágúst.

Opnunartími alla daga frá kl. 14-17

Viðfangsefni sýningarinnar er blanda af persónulegum minningum, ævintýrum, hugarórum og martröðum svo erfitt er að greina á milli. Til sýnis verða olíumálverk á striga og teikningar á pappír sem voru unnin á síðustu tveimur árum.
 
Heiðdís Hólm (f. 1991) lauk námi úr Myndlistarskólanum á Akureyri 2016 og stundaði nám við Glasgow School of Art veturinn 2019 - 20. Hún hefur sýnt hérlendis og í Evrópu, t.d. í Skotlandi, Frakklandi og Svíþjóð. Síðastliðin ár hefur hún sett fókusinn á tvívíð verk, oft sjálfsævisöguleg með áherslu á teikningu og dramatík.
Hvenær
5. - 14. ágúst
Hvar
Kaupvangsstræti 12, Akureyri
Verð
Aðgangur ókeypis
Nánari upplýsingar

Nánar um Heiðdísi Hólm HÉR