Til baka

Ólafsfjarðarskarð

Ólafsfjarðarskarð

Gengið frá Þverá í Ólafsfirði inn Kvíabekkjardal upp í Ólafsfjarðarskarð.

18. júlí, laugardagur

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Rúta sækir svo hópinn í Brúnastaði.

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Una Sigurðardóttir

Ekið er að Þverá í Ólafsfirði. Gengið þaðan inn Kvíabekkjardal, upp í Ólafsfjarðarskarð sem er í 740 m hæð. Þaðan sést vel niður í Ólafsfjarðardal,

Fljótin og Miklavatn. Gengið niður dalinn og endað við Brúnastaði. Áður fjölfarin póstleið milli Ólafsfjarðar og Fljóta.

Vegalengd 15–16 km. Gönguhækkun 670 m.

Verð: 10.500 / 12.500 kr. Innifalið: Fararstjórn og rúta sem sækir hópinn í Brúnastaði.

Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
laugardagur, júlí 18
Klukkan
08:00-18:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
Verð: 10.500 / 12.500 kr. Innifalið: Fararstjórn og rúta sem sækir hópinn í Brúnastaði.