Til baka

Dj Björgvin Máni í Braggaparkinu

Dj Björgvin Máni í Braggaparkinu

Opið hús og Dj þeytir skífum

Í tilefni Barnamenningarhátíðar býður Braggaparkið áhugasömum börnum og unglingum að prófa nýjustu innanhússaðstöðuna á Akureyri fyrir hjólabretti, línuskauta, hlaupahjól og BMX-hjól.

Í tilefni dagsins mun Dj Björgvin Máni þeyta skífum frá kl. 16.

*Opnunarhátíð Skálarinnar frestast fram í nóvember. Nánar auglýst síðar.


Takmarka þarf fjölda foreldra og forráðamanna á hverjum viðburði við 20 og virða tveggja metra regluna. Fólk er beðið að virða núgildandi sóttvarnarreglur yfirvalda í hvívetna. Sjá nánar á www.covid.is


Viðburður á Facebook HÉR


Viðburðurinn er haldin í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri sem fer fram í október og nýtur stuðnings Akureyrarbæjar.

Hvenær
fimmtudagur, október 29
Klukkan
12:00-19:00
Hvar
Braggaparkið Skatepark, Laufásgata, Akureyri
Nánari upplýsingar

Enginn aðgangseyrir.