Til baka

Opið hús - Rauðu flöggin

Opið hús - Rauðu flöggin

Borgarasamtal um netöryggi og upplýsingaóreiðu

Skúli Bragi Geirdal og Haukur Brynjarsson sérfræðingar í félagslegu netöryggi og miðlalæsi mæta á staðinn og taka samtalið.

  • Netsvik snúast um að blekkja fólk. Við hjálpum þér að vera á varðbergi.
  • Markmið fræðslunnar er að efla upplýsinga- og miðlalæsi þátttakenda og valdefla þá sem örugga, gagnrýna og ábyrga notendur í síbreytilegur stafrænu umhverfi.
  • Umfjöllunarefni: Netveiðar, ástarsvik, fjársvik á netinu, áróður, þjóðaröryggi, falsfréttir, gervigreind og upplýsingaóreiða.

Smelltu hér til að taka þátt í streymi

Boðið verður upp á fleiri erindi á Haustmisseri á Opnu húsi:

  • 30. nóv - 1. desember. Sagan og mikilvægi dagsins
  • 14. des - Hvernig tala kerfin okkar saman? Kynning frá HSN og SAk

Opin hús eru alltaf á mánudögum klukkan 14:00 í stofu N102, Sólborg, Norðurslóð 2

Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær. Verkefninu er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra!

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir - Ókeypis aðgangur!

Hvenær
mánudagur, október 5
Klukkan
14:00-15:00
Hvar
Háskólinn á Akureyri