Til baka

Opin vinnustofa

Opin vinnustofa

Opin vinnustofa myndlistamannsins Jónínu Bjargar Helgadóttur

Komið og kíkið á efri hæðina í Laxdalshúsi þar sem Jónína Björg opnar sína vinnustofu og verður með til sýnis mikið af sínum verkum. Þar verða bæði olíumálverk, grafíkverk og fleira, flest unnið í Laxdalshúsi. Upplagt ef þú vilt kíkja á húsið, eiga spjall við listamanninn eða næla þér í einstakt verk sem gjöf eða til að eiga. Einnig verður sérstakt litaborð fyrir börnin þar sem hægt verður að prófa nokkur af verkfærum listamannsins. Verið velkomin!

Ath. Þetta er á efri hæð gamals húss með enga lyftu.

Hvenær
þriðjudagur, maí 9
Klukkan
15:00-18:00
Hvar
Hafnarstræti 11, Akureyri