Við opnum bæinn - opið hús í Sigurhæðum - á sumardaginn fyrsta og daginn eftir og bjóðum gestum og gangandi að rölta inn, forvitnast, skoða, spjalla og njóta staðarins.
Það er auðvitað líka útgáfuhóf á sumardaginn fyrsta hjá okkur í Pastel ritröð kl 13-14 en húsið er opið kl 9-17 báða dagana.
Og svo er nú líka Eyfirski safnadagurinn á Sumardaginn fyrsta og tilvalið að rölta eða keyra eða hjóla á milli þeirra aðila og staða sem stunda menningarmiðlun.
Enginn aðgangseyrir og opið kl 9-17 báða dagana.
Yfirskrift þessarra fyrstu sumardaga hjá okkur er sótt í vorkvæði eftir Matthías okkar sem byrjar svona:
Opnaðu bæinn, inn með sól!
Öllu gefur hún líf og skjól,
vekur blómin og gyllir grein,
gerir hvern dropa aðalstein.
Opnaðu bæinn.