Opnun jólatorgsins og ljósin tendruð á jólatrénu
Hátíðleg stund verður á Ráðhústorginu fyrsta í aðventu
Hátíðleg stund verður á Ráðhústorginu fyrsta sunnudag í aðventu þegar ljósin verða tendruð á jólatré bæjarbúa og splunkunýtt jólatorg verður opnað.
Milli kl. 15-17 verður til sölu ýmis varningur í skreyttum jólahúsum sem yfirleitt tengist hátíðarhöldunum með einum eða öðrum hætti. Skátafélagið Klakkur verður á staðnum með eldstæði þar sem hægt verður að grilla sykurpúða yfir.
Hátt og reisulegt grenitré var fundið í bæjarlandinu og komið fyrir á Ráðhústorgi. Fyrir aðventuna 2022 var ákveðið að hætta að flytja jólatré frá danska vinabænum Randers yfir hafið en eftir sem áður verða ljósin á trénu tendruð með kærri kveðju frá vinum Akureyringa í Danmörku.
Dagskráin hefst að þessu sinni kl. 15.15 þegar að söngkonan Jónína Björt stígur á svið og flytur jólalög. Þar næst fáum við nokkur lög úr jólasýningunni Jóla Lólu á vegum Leikfélags Akureyrar. Þar á eftir mun Lúðrasveit Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur leika nokkur létt jólalög en síðan er búist við að kl. 16 munu hinir óútreiknanlegu jólasveinar taka yfir dagskrána með þónokkrum látum og hurðaskellum.
Líklegt er að þeir hleypi Erik Vilstrup Lorenzen sendiherra Danmerkur og Geir Kristni Aðalsteinssyni ræðismanni Danmerkur á Norðurlandi, síðan að til að bera bæjarbúum kveðju frá Randers og þá flytur Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, stutta jólahugvekju.
Kl. 16.30 tendra Embla Þórhildur 10 ára og Benjamín Loki 8 ára ljósin á jólatrénu. Loks syngur Barna- og unglingakór Glerárkirkju undir stjórn Margrétar Árnadóttur áður en jólasveinarnir tralla klassísk jólalög með gestum á Ráðhústorgi. Að því búnu stíga þeir niður af sviðinu og bjóða gestum og gangandi að þiggja hollt jólagóðgæti úr pokum sínum. Jólatorgið lokar svo kl. 17 að dagskrá lokinni.
Jólatorgið verður svo opið næstu tvær helgar á eftir með skipulagðri dagskrá við allra hæfi. Nánari upplýsingar um jólatorgið á Akureyri má finna á
www.jolatorg.is
Annað í miðbænum:
- 66°Norður kl. 11.00-17.00: 66°Norður með jólatilboð - 20% af húfum með öðrum kaupum, 20% af bolum ef keyptir eru 2 eða fleiri, 20% af öllum töskum með öðrum kaupum, 15% af barnasettum.
- Jólaævintýrið, sýning í glugganum í Hafnarstræti 88. Systurnar Brynja og Áslaug Harðardóttir Tveiten öðru nafni Fröken Blómfríður eiga heiðurinn af sýningunni. Þær systur hvetja öll að gera sér ferð fram hjá glugganum og stíga inn í Jólaævintýrið með þeim um stund.
- Icewear kl. 11.00-17.00: Icewear fjórar verslanir í miðbænum (Tvær fataverslanir, minjagripa verslun og garn verslun)
- Stjörnusól kl. 11.00-21.00: Tilboð 15% afsláttur af öllum kortum í ljós pott og innfrarauða saunu.
- Centro kl. 13.00-16.00