OPNUN: Út í garð - Charlotte Søeborg
Fágæt skordýr úr málmi leynast meðal trjáa og blóma garðsins
Á setningu Akureyrarvöku, Rökkurró, opnar sýning dönsku listakonunnar Charlotte Søeborg, þar sem fágæt skordýr úr málmi leynast meðal trjáa og blóma garðsins. Nokkur þeirra hafa jafnframt tekið sér bólfestu í gluggum uppgangs Listasafnsins á Akureyri.
Komdu og upplifðu kyrrð, undrun og fegurð þar sem list og náttúra mætast í mjúku kvöldljósi.
Opnun föstudagskvöldið 28. ágúst við setningu Akureyrarvöku í Lystigarðinum og laugardaginn 29. ágúst við opnun þriggja sýninga í Listasafninu.
Boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna eftir að formlegri dagskrá lýkur í Skrúðhúsi Lystigarðsins.