Til baka

Óskalög Barnanna

Óskalög Barnanna

Kl. 19.00-20.00 - Langar þig stundum bara að geta valið hvaða lög eru spiluð á tónleikum? Já núna er tækifæri til þess!
Jónína Björt og Ívar Helga flytja okkur tónleika í Kvosinni í Menntaskólanum á Akureyri í tilefni Akureyrarvöku. Áhorfendurnir ráða för og þá sérstaklega börnin. Þú velur uppáhalds lag sem þú vilt fá að heyra og við gerum okkar besta til að koma því að á listan hjá okkur.

Gleði og gaman.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
 
Að tónleikum loknum er svo tilvalið að kíkja yfir í Lystigarðinn þar sem setningarhátíð Akureyrarvöku hefst kl 20.00.

Verkefnið er styrkt af Akureyrarvöku og unnið í samstarfi við Menntaskólann á Akureyri.
 
Hvenær
föstudagur, ágúst 26
Klukkan
19:00-20:00
Hvar
Menntaskólinn á Akureyri, Kvosin, Eyrarlandsvegur, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir