Við fögnum 150 ára fæðingarafmæli skáldkonunnar Kristínar Sigfúsdóttur (1876-1953) frá Helgastöðum í Eyjafirði.
María Pálsdóttir leikkona hefur umsjón ásamt Kristínu Þóru staðarhaldara í Sigurhæðum.
Leikararnir Hjalti Jónsson, Jón Benónýsson, Kolbrún Lilja Guðnadóttir, Sunna Borg og Þuríður Jóna Schiöth leiklesa brot úr leikritinu Tengdamömmu sem Kristín skrifaði árið 1920.
Sigrún Jóhannesdóttir barnabarn Kristínar segir stutt frá eftirminnilegri ömmu sinni.
Kristín hafði í sér þennan óvenjulega innri kraft og sannfæringu um að láta verða eitthvað úr sér, eiga erindi, hafa rödd og koma með verkum sínum skilaboðum á framfæri til annarra um jöfnuð, manngæsku og mannlega breyskleika. Kristín hafði að bera óvenjulega næmni fyrir tilfinningum og aðstæðum persóna sinna og einstakt vald á íslensku máli. Hún var í farskóla einn vetur en annars sjálfsmenntuð. Frá unglingsaldri samdi hún, leikstýrði og lék í eigin leikritum og varð þannig neisti í frjóu leikhúslífi innarlega í Eyjafirði í lok 19. og upphafi 20. aldar. Móðurbróðir Kristínar, Páll Jónsson Árdal var ásamt Matthíasi okkar einn helsti drifkraftur að leikhúsi á Akureyri í kringum aldamótin 1900.
Leikrit Kristínar voru leikin víða um land í áratugi eftir 1920 og skáldsögur, smásögur og ljóð hennar höfðuðu sterklega til fólks.
Kristín var líka mikil kvenréttindakona, hrókur alls fagnaðar og mjög vinsæl heim að sækja þegar hún bjó hér á Akureyri (1930-1953), en hún og fjölskylda hennar átti um tíma heima í Sigurhæðum (1936-1940).
Kristín var á fyrri hluta 20. aldar einn vinsælasti rithöfundur landsmanna og á skáldalaunum frá Alþingi frá um 1930 til dauðdags 1953, féll síðan í gleymsku eða var að hluta ýtt til hliðar - en stígur nú aftur fram hér við Sigurhæðir.
"En verk hennar bíða þess að verða grafin úr gleymsku og endurmetin." (Ragnhildur Richter)
Viðburðurinn er unninn í samvinnu við Maríu Pálsdóttur leikkonu með aðstoð afkomenda Kristínar og styrktur fjárhagslega af Menningarsjóði Eyjafjarðarsveitar, Ráðuneyti menningar-, háskóla og nýsköpunar, Akureyrarbæ og fjárframlögum almennings.
Enginn aðgangseyrir - öll velkomin á Óskastund Kristínar.
Meðfylgjandi ljósmynd tók líklegast Jóhannes Pálmason, sonur Kristínar, en á myndinni er líka Jakobína Pálmadóttir til hægri.