Til baka

Öskjuvegurinn; fimm daga ferð 21.-25. júlí: TRÚSSFERÐ

Öskjuvegurinn; fimm daga ferð 21.-25. júlí: TRÚSSFERÐ

Ferðafélag Akureyrar

Öskjuvegurinn; fimm daga ferð: Trússferð

Brottför kl. 13 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Guðlaug Ringsted
Í ferðinni er gengið með lágmarksbúnað. Trússbíll ekur með farangur á milli skála. Bíllinn fylgir hópnum allan tímann. Fólk er beðið um að takmarka farangur eins og hægt er. Rúta sækir svo hópinn í lok ferðar. Gist í skálum FFA við Drekagil, í Dyngjufelli og Botna í Svartárbotnum.

1.d., sunnudagur: Ekið í Dreka, með viðkomu í Herðubreiðarlindum. Gist í skála FFA við Drekagil.

2.d., mánudagur: Gengið eftir stikaðri leið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju. Komið við í Víti. Hópurinn verður sóttur á bílastæðið við Öskjuop og ekið til baka að Dreka, gist þar aðra nótt. Vegalengd: 13-14 km.

3.d., þriðjudagur: Ekið upp í Öskjuop. Gengið eftir stikaðri leið þaðan, yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og niður í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli, skála FFA.
Vegalengd: 14 km.

4.d., miðvikudagur: Frá Dyngjufelli er gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna, skála FFA.
Vegalengd: 20-22 km.

5.d., fimmtudagur: Lokadagur; gömlum jeppaslóða er fylgt frá Botna í Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti.
Vegalengd: 15-16 km. Ekið með rútu til Akureyrar. Gert ráð fyrir að koma þangað um kl. 17.

Hámarksfjöldi 14 manns.

Verð: 93.500/98.500. Innifalið: Gisting í fjórar nætur, rúta og trússbíll með bílstjóra, fararstjórn.
Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð kr. 15.000 í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka.
Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu fyrirfram, tíu dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.

Hvenær
sunnudagur, júlí 21
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
93.500/98.500