Til baka

Pálmi Gunnarsson

Pálmi Gunnarsson

 

Föstudagskvöldið 14. júlí ætlar Pálmi Gunnars, ásamt nokkrum af bestu hljóðfæraleikurum landsins halda tónleika á Græni Hattinum og flytja öll sín bestu og þekktustu lög

Ekki þarf að fjölyrða um tónlistarferil Pálma enda fáir íslenskir tónlistarmenn sem eiga jafnlangan og farsælan feril og hann.
Hver man ekki eftir lögum eins og Þitt fyrsta bros, Vegurinn heim og Hvers vegna varstu ekki kyrr? Og allir muna eftir Gleðibankanum, fyrsta framlagi Íslendinga í Eurovision, sem Pálmi flutti ásamt Helgu Möller og Eiríki Haukssyni 🎙.png
Ásamt því að starfa með Mannakornum, Brunaliðinu, Friðryk, Blúskompaníinu og Póker, svo einhverjar hljómsveitir séu nefndar, hefur Pálmi átt glæsilegan sólóferil og unnið hug og hjörtu þjóðarinnar með söngperlum sem hvert mannsbarn þekkir
Pálmi gerir ekki mikið af því að koma einn fram en stígur nú á stokk og fer yfir glæsilega ferilinn sinn. Óhætt er að segja að hér sé um einstakt tækifæri til að hlýða á Pálma flytja öll sín þekktustu lög í mikilli nánd.
Með Pálma á sviðinu verða engar smá kanónur:
Gulli Briem - Trommur
Þórir Úlfars - Hljómborð
Pétur Valgarð - Gítar
Húsið mun opna kl. 20.00 og tónleikar hefjast kl. 21.00.
Hvenær
föstudagur, júlí 14
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
6500