Pappakassasmiðja
Búum til hús úr pappakössum
Verið velkomin til okkar á pappakassasmiðju laugardaginn 21. mars frá klukkan 13-15. Smiðja þar sem krakkar (og fullorðnir) geta breytt pappakössum í hús, litað þau og skreytt, eða búið til eitthvað annað sem þeim dettur í hug.
Pappakassar, tússlitir og límband á staðnum.
Frítt fyrir öll.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.