Til baka

Píanóveisla - Alexander, Björn og Þórhildur

Píanóveisla - Alexander, Björn og Þórhildur

Sumartónleikar Akureyrarkirkju

Alexander, Björn og Þórhildur eru öll ungir og efnilegir píanóleikarar. Þau hafa öll menntað sig við Tónlistarskólann á Akureyri og eiga framtíðina fyrir sér í píanóleik. Hvert þeirra mun flytja 20 mínútur prógram og má því búast við fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá þann 5. júlí í Akureyrarkirkju.

Alexander Smári Kristjánsson Edelstein er fæddur 15. maí 1998. Hann stundaði píanónám hjá Þórarni Stefánssyni við Tónlistarskólann á Akureyri frá 2009 til 2017. Alexander hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir spilamennsku sína en hann hlaut meðal annars fyrstu verðlaun í píanókeppni EPTA árið 2012 og sérstök verðlaun sem einleikar í Nótunni sama ár. Alexander hefur haldið þó nokkra einleikstónleika og komið fram á ýmsum viðburðum sem einleikari.
Alexander stundar nám við Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Peter Máté og er á leið í skiptinám til Svíþjóðar þar sem hann mun nema við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi.

Björn Helgi Björnsson hóf píanónám 6 ára gamall við tónlistarskólann á Akureyri og stundar þar nám hjá Lidiu Kolosowska í dag. Björn hefur tvisvar keppt í píanókeppni EPTA hér á Íslandi með góðum árangri en í síðustu keppni sem haldinn var í Hörpu hlaut Björn 1. verðlaun í flokki 19 ára og yngri.

Þórhildur Hólmgeirsdóttir er fædd árið 2001. Þórhildur er uppalin í Stykkishólmi þar sem hún hóf nám við píanóleik 6 ára gömul við Tónlistarskóla Stykkishólms. Þórhildur fluttist svo til Akureyrar þar sem hún fór á tónlistarbraut í Menntaskólanum á Akureyri. Þórarinn Stefánsson kenndi henni þá á píanó hjá Tónlistarskólanum á Akureyri. Hún lauk framhaldsprófi á píanó og þar með stúdentsprófi 15.maí 2020.

Tónleikarnir hefjast kl 17:00.

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði, Héraðssjóði, Akureyrarbæ og eru partur af Listasumri.

Sjá viðburð á Facebook HÉR

 

Hvenær
sunnudagur, júlí 5
Klukkan
17:00-18:00
Hvar
Akureyrarkirkja, við Eyrarlandsveg, Akureyri
Nánari upplýsingar

Sumartónleikar Akureyrarkirkju á Facebook

Enginn aðgangseyrir  - tekið verður við frjálsum framlögum