Til baka

Pípur, hús og nótur - setjum saman orgel

Pípur, hús og nótur - setjum saman orgel

Spennandi námskeið í Minjasafninu á Akureyri fyrir 6-12 ára.

Á sýningunni Tónlistarbærinn Akureyri leikum við okkur með að setja saman orgel, pípu fyrir pípu, raða nótum og tengja við vindhlöðu, setja saman orgelhúsið og auðvitað prófa hljóðfærið.

Í lokin flytjum við saman ævintýri fyrir orgel og sögumann sem samið var sérstaklega fyrir orgelið.

Orgelkrakkar er stórfróðlegt og skemmtilegt verkefni sem hefur notið mikillar velgengni í Evrópu undanfarin ár.
Orgelið sem um ræðir er afar einfalt að gerð, lítið og nett og stærðin passar börnum vel. Það kemur í bitum eða kubbum og er til þess gert að taka í sundur og setja saman aftur. Svona eins og úr legó eða trékubbum.

Það er organistinn Sigrún Magna Þórsteinsdóttir sem stjórnar þessari stund sem tekur klukkutíma og ætluð krökkum á aldrinum 6-12 ára.

 


Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar og SSNE.  

Hvenær
laugardagur, apríl 16
Klukkan
11:00-12:00
Hvar
Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58
Verð
Ekkert þátttökugjald - Skráning nauðsynleg
Nánari upplýsingar

Takmarkaður fjöldi – skráning á minjasafnid@minjasafnid.is