Stígið um borð í strætisvagn númer 6 og njótið raftónlistar hringinn í kring um Akureyri.
Pitenz mun syngja og spila í gegnum Glerárhverfi, Síðuhverfi, Lundahverfi, Brekkuna og Naustahverfi og er öllum frjálst að stíga inn eða út úr strætó þar sem þeim sýnist.
Mætið stundvíslega þar sem strætó leggur af stað frá Miðbæ á slaginu 17:18 og bíður ekki eftir neinum.
Viðburðurinn er styrktur af Listasumri 2026.
Viðburðadagatal hátíðarinnar má finna á listasumar.is