Til baka

Plokkbingó

Plokkbingó

Vika 17 er alþjóðleg vika Heimsmarkmiðanna á bókasöfnum. Í tilefni vikunnar verða ýmsir viðburðir tengdir Heimsmarkmiðunum á dagskrá Amtsbókasafnsins.
 
Alla vikuna, frá mánudegi 22. apríl til og með mánudagsins 29. apríl fer fram plokkbingó. Þátttakendur geta nálgast bingóspjöld í afgreiðslu bókasafnsins og þar er auk þess hægt að fá lánaðar plokktangir. Þau sem plokka rusl úr öllum flokkum geta skilað inn útfylltu spjaldi, heppinn plokkari fær glaðning auk þess að hreppa titilinn Plokkari Amtsbókasafnsins 2024!

Spjöldum þarf að skila inn fyrir þriðjudaginn 30. apríl.
 
Þau sem vilja kynna sér Heimsmarkmiðin betur eru hvött til þess að skoða síðuna https://www.heimsmarkmidin.is/
 
Við hvetjum ykkur til þess að mæta með umhverfisvænum hætti á bókasafnið. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.
Hvenær
22. - 29. apríl
Klukkan
10:00-19:00
Hvar
Amtsbókasafnið, Brekkugata, Akureyri