Plöntuskipti
Öllum er velkomið að skiptast á blómum, græðlingum og fræjum.
19. - 23. maí fara fram plöntuskipti á kaffiteríunni Amtsbókasafnsins. Öllum er velkomið að skiptast á blómum, græðlingum og fræjum. Þau sem ekkert hafa til skiptanna eru líka velkomin, þetta er upplagt tækifæri fyrir þá sem eiga umfram, að deila með öðrum.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.