Plöntuskipti
Öllum er velkomið að skiptast á blómum og græðlingum
16. júlí fara fram plöntuskipti á kaffiteríu Amtsbókasafnsins kl. 11-19. Öllum er velkomið að skiptast á blómum, plöntum og græðlingum. Þau sem ekkert hafa til skiptanna eru líka velkomin, þetta er upplagt tækifæri fyrir þá sem eiga umfram, að deila með öðrum.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.